Punktur, punktur, komma, strik!
11. júlí 2008 klukkan 00:16
Hello
Ég er komin heim frá Spáni og Flæðareyri og þetta var allt ótrúlega gaman. Á Spáni gerðum við fjölskyldan mikið skemmtilegt saman, fórum á ströndina, sundlaug, Terra Mitica á Benedorm sem var ekkert smá gaman og ég var hetja, fór í öll stóru tækin :) Ég var reyndar búin að fara í svona teyjukúlu með Einari í Torriveija svo mér voru allir vegir færir. Það var stutt að vera í viku en ég hefði pottó verið lengur ef ekki væri fyrir Flæðareyrarhátíðina sem var ótrúlega skemmtilegt. Hitti marga og kynntist fullt af fólki, síðan fékk ég einu sinni að vinna í K.F.O.N haha, ég var nú einu sinni Kaupfélagsfrú þar sem Einar og Gunnar Ingi voru Kaupfélagsstjórar.
Við sungum Strolluna svona 50x sem var mjög mikið fjör og fullt af öðrum lögum, svona ekta útilegustemming :D Allavega var mjööög gaman á Spáni og Flæðareyri og alveg massíft að vera á Spáni þegar þeir urðu Evrópumeistarar.. Viva ESPANIA, engin smá læti sem brutust út og skemmtilegt að vera vitni af því :)
Jemin þetta er allt í belg og biðu hjá mér..
Framundan er bara vinna og helgarfrí. Á helginni ætlum við Einar að fara í kósý ferð í Heydal, gista eina nótt í bústaðnum og síðan eina nótt á hótelinu, fara í kayak ferð og svoleiðis,hlakka ekkert smá til :) Síðan á næstu helgi ætlum við í Furufjörð, hlakka líka til enda er fátt betra en að vera í sælunni þar. Þar á eftir er róleg helgi og stuttu eftir það er Einar farin með Óskari og Lofti í Eurotrip, síðan kemur hann heim um miðjan mánuðinn og síðan förum við í sitthvora áttina e-ð um 20 ágúst. Hann til Köben að vinna og ég til Noregs auðvitað :) Ég var að hugsa að vera með 123.is síðu þegar ég er að úti til að ég geti sett myndir og svoleiðis inná án nokkurs vesen, nenni ekki að standa í svoleiðis, hvernig líst ykkur á það ? :)
Jæja þetta fer að koma.. ég er buin að vera frekar einmanna á...nei ég er hætt við að skrifa þetta því Einar var að koma rétt í þessu óvænt inn í herbergið til mín heim frá Ingjaldssandi en hann var þar á vinna. Ég saknaði hans mikið, það var eiginlega ekkert símasamband svo það er voðalega gott að fá hann heim , híhi :)
Allavega ekki lengra í bili, endilega skrifið skoðanir.
P.S Ég er búin að setja myndir frá Spáni og Flæðó á facebook-ið, ég er ennþá að læra á það :)
P.S 2 .. Ég er búin að vera geðviekt löt í vikunni og slöpp, en það er gje gaman í vinnu með Nínsu, Kollu, Bíbí og Kjarrholti :D
hilsen Ingaló
Anna
fannst bara svo tómlegt hérna *-) gaman að því
#1
12. júlí 2008 klukkan 20:18
