Leit

Atburðarteljari

I'm soooorry!

01. júlí 2007 klukkan 21:32
úbs sorry, langt síðan ég hef bloggað.. hef einfaldlega ekki haft tíma til þess.

Margt hefur á daga mína drifið ..

-Mamma mín og Stella urðu 40 ára fyrir rúmri viku síðan eða 23.júní ;)
-Ég fór suður um seinustu helgi að spila tvo leiki sem töpuðust báðir.. annar freeekar naumlega þar sem við komumst 2-0 yfir í hálfleik!
-Kepptum í dag á móti GRV sem tapaðist en það var frekar klaufalegt.. áttum góðann leik.
-Eg fékk nýja takkaskó frá Spáni,bol,nammi,tyggjó og síðan fengum við Einar inniskó líka.
-Vinna,Vinna,Vinna og við erum svo ótrúlega heppin með veður að maður verður bara frekar brúnn á því að vera úti allann daginn.
-Ég flutti um herbergi.. málaði áður en ég fór suður og síðan þegar ég kom aftur til baka var Einar búinn að færa rúmið og þrífa allt og gera klárt fyrir mig þegar ég kom heim, ég var ekkert smá glöð.. enda ekkert smá  verk sem hann tók sér þar fyrir hendur. TAKK!:*
-Færði Hjalta Má og Teit um herbergi áður en mamma,pabbi og Teitur komu aftur, þreif húsið hátt og lágt og þau voru ekkert smá ánægð þegar þau komu heim í "Nýtt" hús, hehe :)

Það er örugglega fleira sem ég bara man ekki eftir í augnablikinu

Framhaldið er nú samt aldeilis spennandi hjá mér.. Einar fer suður að vinna í fyrramálið og kemur heim á föstudaginn, þá er bara ekkert annað en að pakka niður í bakpoka og halda af stað í Hrafnfjörð og ganga þaðan í  Furufjörð þar sem við munum dvelja fram á miðvikudag ásamt æðislegu fólki, ég hlakka svo ótrúlega mikið til.. ætlum í fjallgöngur og gera ýmislegt skemmtilegt!:) Á miðvikudeginum koma Björn og Kristín í Furufjörð og við förum heim með þeirri ferð, ég stoppa stutt vegna þess ég fer á Gufuskála daginn eftir.. flýg til Reykjavíkur og keyri þaðan þar sem ég mun dvelja í frekar langann tíma.. hinir krakkarnir munu koma síðan á miðvikudaginn viku seinna því þá byrjar Landsmót Unglingadeilda sem verður örugglega geðveikt gaman!.. Í framhaldi af því koma síðan Englindingarnir að heimsækja okkur og við verðum ennþá lengur á Gufuskálum, komum síðan til Ísafjarðar og höldum síðan eitthvert yfir Djúp í göngu og tjaldgistingu. Þetta verður rosalegt stuð og langt frí en hvað með það .. hlakka sérstaklega til að eyða því með Einari:)

Eeeeen yfir í aðra sálma..
 
Ég ætla að reyna að fara til Spánar eða eitthvert í endaðann ágúst, vooona svo innilega að það gangi upp, þá förum ég og Einar saman að sóla okkur. Ef allt gengur eftir !:) Síðan ætlar strákurinn örugglega aðf ara til Noregs að vinna í 1-2 mánuði til að prufa(fær styrk líklegast) það verður örugglega gaman hjá honum, hver veit nema hann bjóði manni í helgarferð :) Ég vona að þetta allt saman gangi upp hjá mér.

Ég veit ekki aaalveg hvað ég á að segja meira í þessu bloggi.. vona að þið hafið nennt að lesa þetta blogg, ekki skemmtilegasta blogg sem ég hef gert, en blogg er þó blogg :)

Sólveig Sigurjóna einn besti bloggarinn í bransanum var einmitt að blogga rétt í þessu ;) Endilega tékka á því!

Takk fyrir mig !:) Endilega kommentið.






Kuldi..

20. júní 2007 klukkan 17:14
- Var að setja fleiri myndir í Ég&mínir -

Seinustu dagar hafa verið mjög heitir og ég er alveg komin með svaka lit í andlitið en alls ekki dagurinn í dag.. sérstaklega eftir hádegi var mér svo ótrúlega kalt að ég var að frjósa.. var með vettlinga,húfu og í úlpu geðveikt stuð! Núna sit ég heima en ætti tæknilega að vera á fótboltaæfingu en þar sem ég er orðin í slappari kantinum ákvað ég bara að hvíla mig vegna þess ég er líka að fara suður að keppa á helginni og ég ætla sko að vera orðin alveg spræk á föstudaginn. Ég nenni nú samt varla að fara suður.. pabbi fer suður íd ag þannig ég verð ein heima og hefði verið bara alveg ein heima á helginni eeen það verður að bíða betri tíma. Ég og Einar verðum nú samt kósý bara hérna áður en ég fer og eftir að ég kem heim.. gera herbergið mitt klárt og svoleiðis, var einmitt að kaupa nýja málingu áðan :) Spennandi

Helgin hjá mér var bara fín.. hitti stelpurnar á laugardaginn og við rúntuðum smá og eitthvað .. Einar var að vinna í löggunni, hann er svo duglegur :) Ég, Nína Guðrún og Ólafía tókum nokkrarmyndir í fallegu veðri á höfninni í Hnífsdal sem kannski koma .. kannski inná síðuna mína einhverntimann:)
Nýja myndavélin hans Einars er geðveikt kúl, fullt af stillingum og bara allt. Ég fæ hana lánaða við tækifæri og á eftir að ræða við hann um Reykjavíkurferðna en ég held það sé alveg pottþétta ð þessi elska leyfi mér að fá hana lánaða þar sem ég týndi pabba myndavél 1.des :(

Ekki meira í bili .. læt nokkrar myndir fylgja með ;)


Hákon Ari                                                     Hákon Ari og Einar Birkir að ræða málin
            
Kærasti minn er svooo sætur í sér :)

Hæbbs :)

18. júní 2007 klukkan 12:41
Gleðilegan þjóðhátíðardag í gær :)

Ætlaði bara að kasta kveðju, Einar fer ekki suður í þetta úthald og það verður voðalega gott að hafa hann hjá mér.. í vinnunni er ég að slá á orf geðveikt trukkaleg 8-) en það er bara fínt.. smá erfitt en núna er sól og blíða þannig ætli maðru fái ekki e-n lit eftir daginn, ætla síðan að kaupa mér kawasakhi skó í dag eða hvernig sem maður skrifar það. :)

Hafið þið það gott í sólinni ;)

Komin heim :)

11. júní 2007 klukkan 22:16

Svalur Jæja, nú er ég komin aftur heim í heiðardalinn eftir skemmtilega Reykjavíkur ferð.. það fyrsta sem ég gerði var auðvitað að hitta Einar, fórum á KFC í HFJ á án efa versta KFC sem ég hef smakkað .. síðan hélt leið okkar til Guðmundar bróðir hans Einars og fjölskyldu sem ég var að hitta í fyrsta skiptið.. það var nú bara gaman :) 
  Við gistum síðan hjá ömmu & afa eftir að hafa fengið okkur smá nammi og kúrt.. :) Ég hitti hann síðan bara um kvöldið á laugardaginn því hann var að vinna allann daginn.. en ég fór nú samt í fyrsta skiptið í sund í Salalauginni með stelpunum ... rennibrautin var bara geðveik, vorum þarna eins og litlar smástelpur.. skemmtum okkur örugglega lang best af öllum sem vorum þarna í rennibrautinni.
 
Á sunnudaginn var síðan spilaður fótboltaleikur á móti Leikni.. komumst yfir og allt en endaði með tapi 6-2 einfaldlega vegna þreytu innan liðsins.. ég var hægri bakvörður og ég skilaði mér held ég bara ágætlega inná vellinum. Ég, Lísa, Anna & Stebba mættum síðan galvaskar í flug sem síðan flaug yfir djúpið og það var svo mikil þoka í Skutulsfirði(bara skutulsfirði) en blíða í öllum hinum fjörðunum að við flugum aftur til baka og fluginu aflýst fram á morgun. Að fá að sjá Einar aftur eftir að hafa ekkert getað verið með honum á Sunnudaginn var æðisleg tilfinning, fórum í mat til Svanhildar konu Guðmundar í tortillas og það var rosalega ljúffengt. Sofnuðum síðan sæl og glöð hjá ömmu&afa í kóp :)

Flugið í morgun var allt of snemma.. ég vaknaði kl hálf 7 og var komin á flugvöllinn kl korter yfir 7.. mætti strax í vinnu þegarég kom og var búin á því þegar ég loksins komst heim .. svaf frá hálf 6 til hálf 9, fékk mér rúnt niður í bæ, fékk mér sælu og núna sit ég hér og rita þessa færlsu.. langt síðan ég hef gert svona bloggfærslu þar sem ég skrifa hvað ég hef verið að gera, hef einfaldlega bara ekkert annað að skrifa um nema...

Ég verð ein heima núna bráðum, veit ekki alveg hversu lengi en mamma, pabbi og Teitur litla barnið eru að fara til Spánar.. mamma og Teitur fara á fimmtudaginn en pabbi viku seinna, ætla í sumarhúsið á Spáni sem amma og afi í kóp eiga. Mér var einfaldlega bara ekki boðið með og ég er sko ekki sátt, sérstaklega ekki ef Einar verður fyrir sunnan að vinna sem ég vona svo innilega að verði ekki. Hann kemur nú samt heim á miðvikudag/fimmtudag og verður þá fram á mánudag sem er fínt :) Ég hlakka svo til...

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, vona að þið nennið að lesa þetta blogg :)



 
Ingibjörg Elín Magnúsdóttir :)

Á morgun ..

07. júní 2007 klukkan 22:56
Á morgun er ég að fara til Reykjavíkur.. hitta Einar minn, Örnu Sigríði sætu sem verður btw 17 ára á morgun, til hammó sæta :* Og síðan ætla ég að reyna að hitta á hana Salvöru mína,vonast til að sjá framan í stúlkuna :) Spilum síðan á laugardag og sunnudag, smá kvíðin en so what ;)
Ég hlakka til að fara suður.. vonast til að fá að fara fyrr úr vinnunni og síðan lendi ég í Reykjavík kl 19.00, vonandi verður stefnan tekin á e-n góðan stað til að borða með mínum heittelskaða.

Langaði bara að kasta kveðju á liðið - endilega lesið seinustu bloggfærslu :)

Guðbjört Lóa

05. júní 2007 klukkan 21:50
 
Elskulega blómarósin okkar lést í gærdag, ég fylltist sorg þegar ég heyrði þetta en núna er hún komin á betri stað eftir erfiða en hetjulega baráttu við krabbamein í nokkur ár. Guðbjört Lóa er hetja í augum mér og verður það ávallt. Ég kynntist henni þegar ég byrjaði í menntaskólanum því hún sat á sama borði og ég stundum .. þegar hún komst í skólann :) Æðislegur persónuleiki. Systir hennar, Salvöru þekki ég hinsvegar mikið betur, kynntist henni einnig þegarég byrjaði í skólanum og núna er hún ein af mínum bestu vinkonum. Alger gullmoli :) Ég vil bara votta þér og fjölskyldu þinni mína dýpstu samúð elsku Salvör mín, hafðu það gott :*


Í mér ríkir svo mikill söknuður.. mér finnst svo eitthvað erfitt að hafa Einar Birki svona mikið í burtu, en það lagast þegar Alþingishúsið klárast;) Ég ætla suður á helginni með stelpunum að keppa þannig ég fæ að hitta hann líka, ég hlakka svooo mikið til!

Ég byrjaði að vinna í gær, það er fínt að vera úti allann daginn og mér líður bara nokkuð vel á meðal framliðna, ótrúlegt en satt. Öll fallegu leiðin, gaman að horfa yfir þettao g sjá síðan hverjir koma í kirkjugarðinn að heimsækja sitt fólk :)

Ég ætla ekki að hafa þetta meira í bili .. hafið það gott :)

Sjómannslíf, sjómannslíf, ástir & ævintýr

02. júní 2007 klukkan 17:40
Halló !=)


Þetta blogg alveg að gera sig, finnst mikið skemmtilegra að blogga hingað heldur en á centralið.. nörd.


Einar kom til mín á miðvikudaginn, mikið var ég glöð og rosalega gott að fá hann heim, fer samt aftur á mánudaginn og verður þá lengur að vinna fyrir sunnan í alþingishúsinu:( ... Ég er samt að spá í að fara suður að keppa á næstu helgi með stelpunum og þá ætla ég eitthvað að vera með honum. Við erum að fara að keppa við HK/Víking og Leikni :)


Ég byrja að vinna á mánudaginn og hlakka til, er búin að vera "aðgerðarlaus" síðan ég hætti í prófum. Verð að vinna í kirkjugörðunum.. úti í allt sumar sem er baaara fínt.Verð að vinna með Nínu Guðrúnu og Elísabetu veit ég, massa stuð:)


Í dag var hinn árlegi laugardagur fyrir sjómannadag.. ég og Einar fórum með Sveinbjörn Orra í siglingu á Gunnar Friðriks eða Læknisbátinn eins og hann kallar hann.. fyrst var hann frekar skelkaður en síðan lagaðist það og hann vildi alltaf vera að rápa fram og aftur í, en það var bara gaman af því. Eftir siglinguna fór ég í Guðmundarbúð,skellti mér í einn flotgalla og fór á Zodiac með strákunum .. það var fjör. Stukkum af Engidalsbrúnni og flutum með straumnum alveg lengst út á "haf". Siðan var bara farið í land eftir mikið ævintýr og beint á sjúkrahústúnið að fá pulsur.. fórum í Bónus eftir það að versla fyrir kvöldið en við erum nokkur að fara að grilla heima hjá Davíð, það verður örugglega fjör :)


Ég kann bara vel við veðrið sem hefur leikið við okkur undanfarna daga og ég vona svo innilega að það haldi svona áfram svo maður fái nú lit í vinnunni:)


Nóg í bili..


     

 Ingbjörg Elín Magnúsdóttir

Happy

30. maí 2007 klukkan 13:59
Jess, ég er komin með vinnu!:D
Byrja á mánudaginn í kirkjugörðunum ... það verður örugglega fjör vegna þess þetta er útivinna og þá fær maður líka smá lit;) Ég fer s.s ekki í HG sem ég er eiginlega bara nokkuð sátt með .. það var eiginlega neyðarúrræði..

Ég er glööð .. komin með vinnu, Einar kemur í fyrramálið og ég er farin út að þrífa bílinn hans ;)

Chao !

Söknuður..

28. maí 2007 klukkan 19:39

Hjelló.

Ég sakna Einars ótrúlega mikið.. hann vinnur og vinnur fyrir sunnan en ég vonast til að fá hann heim í seinasta lagi á fimmtudaginn, þá verður sko gaman :) já ég er ástfangin.. þó þetta hljómi væmið þá er mér bara aaalveg sama. Lífið er svo dásamlegt.


Dagný kvatti mig til að blogga, kúkalabbinn.. verði hennar vilji. Hún kemur til mín eftir 2 daga, það verður skemmtilegt. www.dagnyf.bloggar.is, skemmtilegt blogg :)


Þessi helgi er búin að vera svakaleg í kökuáti. Ísak frændi minn fermdist í gær og ég fór auðvitað í veislu og borðaði ekkert smá mikið.. enda var ég þar til 21.. horfa á hann opna pakkana og svoleiðis :) Fór síðan heim og prufaði nýju hjólaskíðin mín, þau eru geðveikt sniðug en ég þarf samt að venjast þeim. Fór síðan á rúntinn með Ólafíu, Nínu Guðrúnu og Telmu.. Anna var líka smá með en hún þurfti að fara að passa.Við rúntuðum til svona 2 í nótt.. þá var ég orðin þreytt og fór heim til Einars að sofa því amma og afi eru í heimsókn og ég lánaði þeim herbergið mitt því ég vil ekki sofa í herberginu hans Hjalta því mér finnst það svo subbulegt :D


Fór á mína fyrstu fótboltaæfingu eftir meiðslin áðan, það var bara geðveikt gaman, strax eftir hana fór ég í veislu til systur ömmu sem var 70 ára í gær.. eins og ég segi : þessi helgi var bara kökur og gotterí.


Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, endilega verið dugleg að kommenta.. það er svo skemmtilegt að fá athugasemdir á það sem maður er að gera.

Lundi :)


Ingibjörg Elín Magnúsdóttir

 

Prófíll

  • Nafn: Ingibjörg Elín Magnúsdóttir
  • Staður: Ísafjörður
  • Hjúskaparstaða: Einar Birkir :)
  • Um mig: Ég heiti Ingibjörg Elín, ég er kærastan hans Einars Birkis, æfi gönguskíði og geng í Menntaskólann á Ísafirði. Ég er 17 ára.

Könnun

Hvernig þekkir þú mig ?

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...