Almennt um mig :)
Ég heiti Ingibjörg Elín Magnúsdóttir fullu nafni og bý á Ísafirði ásamt fjölskyldu minni. Móðir mín heitir Málfríður,pabbi minn heitir Magnús og síðan á ég auðvitað systkini eða réttara sagt tvo bræður, Hjalti Már sem er 18 ára(09.03.89) og Teitur(02.10.94) sem er 13 ára:)
Ég hef átt heima á Ísafirði allt mitt líf fyrir utan eitt ár í Hnífsdal(1.árið) þegar við vorum að byggja húsið okkar á Stakkanesinu sem ég bjó síðan í til 14 ára aldurs að mig minnir.Núna bý ég í húsi sem við vorum að gera upp að innan,Hjallavegi.
Ég er mikil íþróttafrík og æfi gönguskíði með Skíðafélagi Ísfirðinga og er einnig í unglingahópi SKÍ. Mér finnst mjög gaman að spila fótbolta og er bakvörður.Mér finnst mjög gaman að spila þá stöðu einkum vegna þess ég get verið aaalgjör trukkur og finnst svolítið gaman að trukkast aðeins :)
Menntaskólinn á Ísafirði er minn skóli og ég er á öðru ári og gengur bara ágætlega. Ég ætlaði að vera á félagsfræðibraut en ég ætla að skipta yfir á náttúrufræðibraut því mér finnst svo gaman í öllu svona líffræði og þannig. Sjáum bara hvernig þetta allt saman gengur fyrir sig.
Ég á kærasta sem heitir Einar Birkir Sveinbjörnsson og við erum búin að vera saman síðan 15.nóvember 2006. Ég elska hann ótrúlega mikið og þetta hefur verið besta árið hingað til. Ég veit ekki hvar ég væri án hans:) Vinkonur mínar eru einnig æðislegar! Eftir að ég byrjaði í Menntaskólanum þá kynntist ég fullt af skemmtilegum stelpum sem ég er mjög þakklát fyrir og vonandi þær líka. Dagný Fjóla flutti til Kópavogs eftir 10.bekk og ég sakna hennar alveg óskaplega mikið, vonandi að hún sjái sólina eitthverntímann og flytji aftur til mín. Sé það samt ekki aaalveg gerast.
Uppáhalds hljómsveitin mín í augnablikinu er Sprengjuhöllin og uppáhaldslagið mitt með þeim er Tímarnir okkar.
ég og strákurinn minn..
ég og hluti af æðislegum vinkonum mínum :)
ég á hnífsdalsbryggju,flottmynd :)
